Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 12. nóvember 2020 18:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gæsahúðarmyndband fyrir leikinn - Baráttukveðjur til strákanna
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland og Ungverjaland eigast við í hreinum úrslitaleik um sæti á EM klukkan 19:45 í kvöld. Ísland á möguleika á því að komast á sitt þriðja stórmót í röð.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.

Friðgeir Bergsteinsson, einn af lykilmönnum Tólfunnar, bjó til afar fallegt myndband fyrir leikinn í kvöld. Magnús Orri Arnarson klippti myndbandið.

„Ég hefði verið til í að fara út. Ég vildi leggja mitt af mörkum og koma með stemningu fyrir leikinn til strákana og bjó ég til skemmtilegt og fallegt videó. Hér leyfi ég ykkur að sjá afraksturinn," skrifar Friðgeir á Facebook.

Hér að neðan má sjá myndbandið en þar má sjá kveðjur frá fjölskyldumeðlimum strákanna okkar.

Áfram Ísland!


Athugasemdir
banner
banner