Fotbolti.net
12.11.20 - 08:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ter Stegen framlengir við Barca (Staðfest) - 500 milljóna ákvæði

Ter Stegen framlengir við Barca (Staðfest) - 500 milljóna ákvæði
Canon

Mynd: Getty Images

Marc-Andre ter Stegen er búinn að skrifa undir nýjan fimm ára samning við Barcelona. Samningurinn rennur út sumarið 2025.

<i>„Ég vil spila á Nývangi í mörg ár í viðbót og halda áfram að vinna titla,"</I> sagði þýski markvörðurinn í myndbandi sem birt var á Twitter-reikningi félagsins.
Ter Stegen hefur unnið deildina fjórum sinnum, Konungsbikarinn fjórum sinnum og Meistaradeildina einu sinni síðan hann gekk í raðir Barca sumarið 2014.

Í samningi Ter Stegen er ákvæði sem segir að markvörðurinn geti yfirgefið félagi ef tilboð berst í hann upp á 500 milljónir evra (445 milljónir punda).
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.