Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mán 13. janúar 2020 23:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Myndband: Afar klaufalegt sjálfsmark Karius í æfingaleik
Mynd: EPA
Loris Karius, markvörðurinn sem er á láni hjá Besiktast frá Liverpool, fékk á sig afar klaufalegt mark eftir fyrirgjöf á föstudag.

Liðið mætti Altinordu og enduðu leikar 2-2. Karius varði mark Besiktas í leiknum. Myndband af fyrra marki Altinordu má sjá neðst í frétinni.

Altinordu sótti á 12. mínútu leiksins og komu inn fyrirgjöf frá vinstri sem Karius ætlaði sér að grípa. Ekki fór betur en svo að Karius missti knöttinn í netið og markið skráð sjálfsmark.

Karius er á tveggja tímabila löngum lánssamningi hjá Besiktas frá Liverpool. Búist er við því að Liverpool selji leikmanninn í komandi sumarglugga þegar lánssamningurinn klárast.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner