Fotbolti.net
13.01.20 - 12:00
Magnús Már Einarsson

Oli McBurnie mætti í stúkuna - Refsað fyrir handabendingu?

Oli McBurnie mætti í stúkuna - Refsað fyrir handabendingu?
Canon

Mynd: Getty Images

Oli McBurnie, framherji Sheffield United, mæti að styðja sína gömlu félaga í Swansea í grannaslag gegn Cardiff í Championship deildinni í gær.
McBurnie fór frá Swansea til Sheffield United í sumar en hann skoraði sigurmarkið gegn West Ham í leik á föstudaginn.

Í gær ákvað McBurnie að kíkja til Wales og fara með félögum sínum á leikinn gegn Cardiff.

Hann sást gefa stuðningsmönnum Cardiff dónalegar handabendingar í stúkunni og Sky telur að enska knattspyrnusambandið muni jafnvel skoða málið í kjölfarið.

McBurnie skemmti sér í það minnsta vel á leiknum í gær en lokatölur urðu 0-0.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.