Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 13. janúar 2021 13:00
Magnús Már Einarsson
Arsenal gæti keypt Solomon í sumar
Mynd: Getty Images
Arsenal gæti reynt að kaupa kantmanninn Manor Solomon frá Shakhtar Donetsk í sumar.

Solomon er 21 árs gamall landsliðsmaður Ísrael en frammistaða hans með Shakhtar hefur vakið mikla athygli.

Solomon skoraði í báðum sigrum Shakhtar gegn Real Madrid í Meistaradeildinni fyrir áramót.

Njósnarar Arsenal hafa fylgst lengi með leikmanninum og að sögn The Guardian eru líkur á að félagið reyni að kaupa hann í sumar.

Arsenal getur ekki eytt háum fjárhæðum í þessum mánuði en í sumar eru meiri möguleikar í stöðunni.
Athugasemdir
banner
banner