Islam Slimani hefur gengið til liðs við franska úrvalsdeildarliðið Lyon.
Slimani kemur til Lyon á frjálsri sölu og skrifaði hann undir samning sem gildir út tímabilið en í boði verður að framlengja hann um eitt ár að tímabilinu loknu.
Slimani er 32 ára gamall framherji sem hefur verið í eigu Leicester City síðan 2016 en einungis spilað 36 leiki með liðinu.
Hann hefur verið sendur á lán á undanförnum árum. Á síðustu leiktíð var hann hjá Monaco en þar á undan hja Fenerbache. Hann hefur einnig leikið með Newcastle á Englandi.
Slimani á að baki 68 leiki með landsliði Algeríu og hefur hann skorað alls 29 mörk þar.
Athugasemdir