Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 13. janúar 2023 12:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Casemiro við umboðsmann sinn: Segðu þeim að ég lagi þetta
Casemiro.
Casemiro.
Mynd: Getty Images
Brasilíski miðjumaðurinn Casemiro hefur verið algjörlega frábær frá því hann gekk í raðir Manchester United frá Real Madrid síðasta sumar.

Hann hefur verið algjör leikbreytir á miðsvæði Man Utd.

James Ducker skrifar í dag áhugaverða grein fyrir Telegraph um Casemiro og þau áhrif sem hann hefur haft á United.

United byrjaði tímabilið skelfilega og tapaði 4-0 gegn Brentford í annarri umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Í grein Telegraph kemur fram að Casemiro hafi verið að fylgjast með leiknum gegn Brentford og í kjölfarið sendi hann skilaboð á umboðsmann sinn þar sem hann sagði:

„Segðu þeim að ég lagi þetta."

Í kjölfarið skrifaði hann undir samning við Man Utd, en áður en félagið gekk frá kaupunum þá ræddu þeir sem taka stórar ákvarðanir hjá félaginu við varnarmanninn Raphael Varane. Franski miðvörðurinn lék með Casemiro hjá Real Madrid.

„Ef þið fáið tækifæri, gerið þá allt sem þið getið til að fá hann," var svar Varane.

Í greininni kemur fram að Casemiro sé gríðarlega mikill fagmaður, hann sé fyrstur til að mæta á æfingasvæðið og síðastur til að fara. Þetta smitar frá sér út í hópinn og það sést inn á vellinum.
Athugasemdir
banner
banner