Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 13. janúar 2023 21:28
Ívan Guðjón Baldursson
Mario Lemina kominn til Wolves (Staðfest)
Lemina kominn í treyju Wolves.
Lemina kominn í treyju Wolves.
Mynd: Getty Images

Wolverhampton Wanderers eru búnir að staðfesta félagsskipti franska miðjumannsins Mario Lemina til sín frá OGC Nice.


Wolves borgar um 10 milljónir punda fyrir Lemina sem hefur reynslu úr ensku úrvalsdeildinni eftir dvöl sína hjá Southampton en hann lék einnig fyrir Fulham á láni.

Lemina á 74 úrvalsdeildarleiki að baki en hann var seldur frá Southampton til Nice fyrir einu og hálfu ári síðan og kostaði þá aðeins um 5 milljónir punda.

Hinn 29 ára gamli Lemina lék 24 landsleiki fyrir Gabon en lagði landsliðsskóna á hilluna í fyrra.


Athugasemdir
banner
banner