Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 13. febrúar 2020 08:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Marca: Barcelona vill ekki borga uppsett verð fyrir Willian Jose
Mynd: Getty Images
Barcelona verður án Luis Suarez og Ousmane Dembele vegna meiðsla næstu mánuði. Barcelona fékk því undanþágu frá spænska knattspyrnusambandinu og má kaupa sér leikmenn þrátt fyrir að félagaskiptaglugginn sé lokaður.

Willian Jose var sagður á leið til Barcelona en Marca greinir frá því að Barcelona vilji ekki borga uppsettt verð fyrir framherjann.

Riftunarákvæði Willian Jose er sjötíu milljónir evra og var Barcelona sagt vilja borga um helminginn af því. Þar var farið með rangt mál því Barcelona hefur unnið að því að reyna lækka verðmiðann á framherjanum án árangurs.

Real Sociedad vildi fá á bilinu 30-35 milljónir evra en Barcelona vill ekki borga svo mikið fyrir Brasilíumanninn.
Athugasemdir
banner
banner
banner