Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 13. febrúar 2020 10:55
Magnús Már Einarsson
Riðlarnir í 4. deildinni í sumar - Fjölgun um eitt lið
Fenrir, Kóngarnir og Úlfarnir ekki með
GG spilar í A-riðli.
GG spilar í A-riðli.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Kóngarnir (í hvítu) eru hættir keppni og verða ekki með í ár.  Egill Ploder og félagar í Kríu (í bláu) er í D-riðli.
Kóngarnir (í hvítu) eru hættir keppni og verða ekki með í ár. Egill Ploder og félagar í Kríu (í bláu) er í D-riðli.
Mynd: Fótbolti.net: Eyjólfur Garðarsson
Mótanefnd KSÍ hefur birt drög að leikjum 4. deildar karla keppnistímabilið 2020. Fjórir riðlar verða í mótinu og átta lið í hverjum riðli eða 32 lið samtals í deildinni. Leikin er tvöföld umferð og eru því 14 leikir á lið.

Fjögur ný lið mæta til leiks í sumar eins og Fótbolti.net fjallaði um í vikunni en það eru: Íþrótta- og boltafélag uppsveita (ÍBU) - Árnessýslu, Suðurlandi, Knattspyrnufélagið Skandinavía - Reykjavík, Knattspyrnufélagið Bessastaðir (KFB) - Garðabæ og Knattspyrnufélagið Blix - Kópavogi.

Þrjú félög sem tóku þátt árið 2019 tilkynntu ekki um þátttöku í ár. Þau eru: Fenrir, Kóngarnir og Úlfarnir.

Hér að neðan má sjá riðlana.

A-riðill:
Afríka
GG
ÍBU
ÍH
KFS
Léttir
Vatnaliljur
Ýmir

B-riðill:
Álafoss
Björninn
KFR
Kormákur/Hvöt
Skandinavía
Snæfell
SR
Stokkseyri

C-riðill:
Berserkir
Hamar
Ísbjörninn

KFB
KM
Samherjar
Skallagrímur

D-riðill:
Árborg
Blix
Hvíti Riddarinn
Hörður Ísafirði
KB
KH
Kría
Mídas

Smelltu hér til að sjá drög að leikjaniðurröðun á vef KSÍ
Athugasemdir
banner