Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 13. febrúar 2021 23:30
Victor Pálsson
Alexandre Pato til Orlando City (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Framherjinn Alexandre Pato hefur skrifað undir samning við Orlando City í bandarísku MLS-deildinni.

Þetta var staðfest fyrr í kvöld en Pato gengur til liðsins á frjálsri sölu eftir að hafa yfirgefið Sao Paulo í Brasilíu.

Pato hefur verið án félags í nokkrar vikur en hann mun nú reyna fyrir sér í Bandaríkjunum í fyrsta sinn.

Um er að ræða 31 árs gamlan sóknarmann sem gerði garðinn frægan með AC Milan frá 2007 til 2013.

Pato hefur einnig leikið fyrir lið eins og Chelsea og Villarreal og á að baki 27 landsleiki fyrir Brasilíu.

Pato hittir annað stórt nafn hjá Orlando en þar spilar Nani fyrrum leikmaður Manchester United.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner