Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 13. febrúar 2021 20:05
Victor Pálsson
Einkunnir Man City og Tottenham - Gundogan bestur og Lloris þristaður
Mynd: Getty
Manchester City var ekki í miklum erfiðleikum með lið Tottenham í kvöld er liðin áttust við i ensku úrvalsdeildinni.

Mourinho heimsótti Pep Guardiola í þessum stórslag en þeir hafal engi eldað grátt silfur saman sem knattspyrnustjórar.

Mourinho þurfti að taka við tómu eftir leik kvöldsins en Man City vann sannfærandi með þremur mörkum gegn engu.

Ilkay Gundogan er sjóðandi heitur þessa dagana en hann skoraði tvö mörk fyrir þá bláklæddu á heimavelli.

Gundogan var valinn maður leiksins í einkunnagjöf Sky Sports sem má nálgast hér fyrir neðan. Hugo Lloris markmaður Tottenham var valinn verstur og fær aðeins þrjá í einkunn.

Man City: Ederson (8), Cancelo (8), Stones (8), Laporte (7), Zinchenko (8), Rodri (8), Gundogan (9), Foden (7), Silva (7), Sterling (8), Jesus (6).

Varamenn: Torres (6), Mahrez (6)

Tottenham: Lloris (3), Tanganga (6), Dier (6), Sanchez (5), Davies (6), Ndombele (6), Hojbjerg (5), Lamela (5), Moura (6), Son (6), Kane (7).

Varamenn: Sissoko (5), Alli (5), Bale (6)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner