Fotbolti.net
13.02.21 - 06:00
Aksentije Milisic

Lasse Schone til Heerenveen (Staðfest)

Lasse Schone til Heerenveen (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Lasse Schone hefur gengið til liðs við hollenska liðið Heerenveen en hann hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Genoa í vetur.
Schone er 34 ára Dani en hann kom til Genoa frá Ajax árið 2019 og spilaði 34 leiki fyrir félagið á Ítalíu. Hann hafði mikið verið orðaður við Cagliari en nú er ljóst að hann er mættur til Hollands.

Hann hefur verið að æfa með Ajax síðan hann yfirgaf Genoa en hann var á mála hjá Heerenveen sem unglingur. Hann skrifaði undir samning sem gildir út þetta tímabil.

Schone á að baki 50 leiki fyrir Danmörk og hefur hann skorað þrjú mörk í þeim leikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.