Fotbolti.net
13.04.23 - 11:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Gamall liðsfélagi ræstur út því markmaðurinn er á Tene

Gamall liðsfélagi ræstur út því markmaðurinn er á Tene
Canon

Mynd: Ingunn Hallgrímsdóttir

Mjólkurbikarinn
Það vakti athygli fréttaritara þegar hann sá að Hjörtur Geir Heimisson væri búinn að fá félagaskipti í Uppsveitir. Hjörtur er 31 árs gamall markmaður sem hefur ekki spilað mótsleik síðan 2018.

Uppsveitir, sem eru í 4. deild, mæta KA í 32-liða úrslitunum í næstu viku á Akureyri og er hugsunin að Hjörtur spili þann leik. Þjálfari Uppsveita hringdi í Hjört og tók púlsinn á honum eftir að dregið var í bikarnum.
„Liam Killa hringdi í mig í gær, ég spilaði með honum í Magna, hann sagði að markmaðurinn þeirra væri á Tenerife og hann vantaði markmann í leikinn. Ég sagði við hann að ég gæti alveg aðstoðað hann við þetta en að ég hafði síðast spilað 2018 og gæti ekki lofað því að ég myndi verja eitt skot," sagði Hjörtur við Fótbolta.net í gær. Liam Killa er þjálfari Uppsveita en hann lék með Hirti í Magna tímabilið 2012.

Uppleggið er einungis að Hjörtur spili þennan eina leik. „Ég er ekki að fara á Flúðir að spila leiki, ég bý á Akureyri. Ég er bara að hjálpa félaga, eða að gera honum grikk. Það á eftir að koma í ljós."

Símtalið kom Hirti á óvart. Hann er í dag í stjórn hjá Magna sem mætir ríkjandi bikarmeisturum í komandi umferð. „Ég fylgdist með drættinum til að sjá hvaða lið Magni fengi. Það fór eins og það fór. Ég reiknaði ekki með að vera fara spila í þessum bikar. Þeir geta sparað sér ferðakostnað fyrir einn mann í þennan leik," sagði Hjörtur léttur.

Hann hefur spilað einn leik sem útileikmaður í Kjarnafæðismótinu og einn sem markmaður á síðustu fimm árum. Hefuru eitthvað undanfarin ár skoðað að koma aftur inn á völlinn?

„Í fyrrasumar, eftir að Vladan Djogatovic fór heim, þá var ég að æfa aðeins með Magna og var á bekknum ef eitthvað skyldi gerast. En það var reynt eftir fremsta megni að tjasla Steinari (Adolf Arnþórsson) nægilega vel saman svo hann gæti spilað. Það er svona það eina sem ég hef gert eftir þetta," sagði Hjörtur.

Leikurinn fer fram á Greifavellinum á miðvikudag og hefst klukkan 18:00. Hér að neðan má hlusta á viðtal við spilandi formann meistaraflokksráðs hjá Uppsveitum.

Uppsveitir mæta KA - „50:50 leikur og við vonum það besta"

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.