Martínez ekki með slitna hásin


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Lisandro Martínez meiddist í leik Manchester United og Sevilla í kvöld en þetta leit ekki vel út í fyrstu.
Einhverjir voru hræddir um að hann hafi slitið hásin og Paul Scholes, fyrrum leikmaður Manchester United sagði í útsendingu eftir leikinn að hann væri hræddur um að svo færi.
Erik ten Hag hefur nú staðfest að ekki er um slitna hásin að ræða.
„Ég get ekki sagt hvað þetta er en þetta var ekki hásin," sagði Ten Hag.
Það eru góðar fréttir fyrir Martínez og Manchester United en svoleiðis meiðsli gætu haldið honum frá keppni næstu mánuðina. Það kemur væntanlega betur í ljós á næstu dögum hvers eðlis meiðslin eru.
Lisandro Martínez carried off the pitch by his Argentina teammates ???????????? pic.twitter.com/ACZFNT3Mbd
— utdreport (@utdreport) April 13, 2023




