Sane faldi neðri vörina fyrir myndavélunum

Sane (lengst til hægri) strax eftir lendinguna í München.

Mynd: Skjáskot

Eins og greint hefur verið frá þá þurfti að aðskilja Sadio Mane og Leroy Sane í klefa Bayern München eftir 3-0 tap gegn Manchester City í Meistaradeildinni.
Þeir sáust rífast á vellinum eftir lokaflaut og það rifrildi hélt áfram í göngunum og inni í klefa. Samkvæmt fréttum þá gaf Mane liðsfélaga sínum högg í andlitið sem skildi eftir sig sprungna vör.

Sane stóð eftir með sprungna vör og þegar lið Bayern lenti aftur á flugvellinum í München eftir ferðalagið til Englands og virtist fela neðri vörina fyrir myndavélunum.
Sane fór með liðsrútunni af flugvellinum en annar bíll kom og sótti Mane.
Bayern hefur ekki tjáð sig um þennan fréttaflutning en í síðasta mánuði sögðu fjölmiðlar að Sane væri óánægður í herbúðum þýska stórliðsins.
Thomas Tuchel tók nýlega við stjórninni hjá Bayern. Hann hefur unnið báða deildarleiki sína en liðið er fallið úr bikarnum og hefur fjall að klífa til að snúa við tapinu gegn Manchester City.

Mynd: Getty Images