Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 13. maí 2022 19:45
Victor Pálsson
Hazard sagður líta mjög vel út
Mynd: Getty Images

Eden Hazard, leikmaður Real Madrid, er byrjaður að æfa á ný eftir að hafa gengist undir aðgerð þann 20. mars.


Hazard hefur alls ekki hrifið stuðningsmenn Real síðan hann kom frá Chelsea og hefur verið mjög mikið meiddur sem hefur ekki hjálpað.

Diario AS fjallar um endurkomu Hazard og segir að hann hafi litið mjög vel út á æfingasvæði Real undanfarna daga sem eru góðar fréttir fyrir Real.

Belginn er vonandi kominn í gott stand en hann hefur alls ekki verið sami leikmaður á Spáni og hjá Chelsea.

Það eru bundnar vonir við að Hazard nái síðasta deildarleik Real á tímabilinu sem er gegn Cadiz.*

Diario segir að Hazard líti út fyrir að vera í mjög góðu standi en hann var á tíma of þungur og fékk töluvert skítkast fyrir það.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner