Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 13. júní 2022 20:11
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið: Þórir Jóhann elskar að skora gegn Ísrael
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þórir Jóhann Helgason gerði annað mark Íslands gegn Ísrael en staðan er núna 2-2 eftir að gestirnir jöfnuðu stuttu síðar.

Lestu um leikinn: Ísland 2 -  2 Ísrael

Íslenska liðið spilaði frábærlega í fyrri hálfleiknum og náði forystunni snemma leiks í gegnum Jón Dag Þorsteinsson er hann stangaði boltann af krafti yfir markvörð gestanna.

Ísrael jafnaði metin áður en hálfleikurinn var úti en núna er Ísland að setja í næsta gír.

Hörður Björgvin Magnússon átti langa sendingu á Arnór Sigurðsson, sem lagði hann fyrir sig og kom boltanum fyrir. Markvörður Ísraels varði boltann út í teig á Þóri Jóhann sem lagði hann snyrtilega meðfram grasinu og í hægra hornið.

Sjáðu mark Þóris
Athugasemdir
banner
banner