Fotbolti.net
13.06.23 - 00:44
Elíza Gígja Ómarsdóttir

Svekktur Nik: Við tókum slæmar ákvarðanir í góðum stöðum

Auglýsing
Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar

Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

Þetta eru mjög svekkjandi. Við vissum að þær yrðu þéttar og myndu gera þetta erfitt fyrir okkur“ sagði Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar, eftir svekkjandi tap gegn Keflavík í Laugardalnum í kvöld. 

Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 - 2 Keflavík

Við tókum slæmar ákvarðanir í góðum stöðum en þrátt fyrir það fengum við tvö dauðafæri í fyrri hálfleik sem við nýttum ekki“ sagði hann svo en fyrri hálfleikurinn var nokkuð lokaður heilt yfir. 

Þrátt fyrir að hafa ekki skapað mikið voru Þróttarar með yfirhöndina og aðspurður hvort hann hafi verið svekktur að hafa ekki farið með forskot inn í hálfleikinn segir hann: „Þrátt fyrir að við höfum stjórnað leiknum þá vorum við ekki að búa neitt til, nema þessi tvö færi. Þetta var bara slök frammistaða á boltanum hjá okkur í dag.“

Þróttarar voru einum færri frá 54. mínútu þegar Álfhildur Rósa, fyrirliði liðsins, fékk beint rautt spjald. 

Varstu sáttur með viðbrögðin frá liðinu eftir að þið lentuð einum færri?

Já, eins og ég segi við kýldum á það. Við gerðum nokkrar skiptingar til að hrista upp í þessu og héldum áfram að skapa okkur færi þrátt fyrir að vera 2-0 undir. Við héldum áfram að berjast og sýndum að við gætum komist aftur inn í leikinn en það var erfitt verkefni.“

Viðtalið við Nik má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan. 

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.