Fotbolti.net
13.07.13 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Jón Gísli Ström kallaður aftur til ÍBV (Staðfest)

Jón Gísli Ström er farinn til ÍBV að nýju.

Jón Gísli Ström er farinn til ÍBV að nýju.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

ÍBV hefur kallað framherjann Jón Gísla Ström til baka úr láni frá 2. deildarliði ÍR en leikmaðurinn fær leikheimild með liðinu í dag.
Jón Gísli var lánaður frá ÍBV til ÍR 8. maí síðastliðinn. Hann er uppalinn hjá ÍR og féll með liðinu niður úr 1. deildinni í fyrra en hann gekk síðan í raðir ÍBV.

Fyrr á árinu gekkst hann undir aðgerð vegna kviðslits og var frá æfingum og keppni í nokkurn tíma.

Jón Gísli var lykilmaður hjá ÍR og getur bæði leikið sem kantmaður og framherji. Hann var lánaður í Breiðholtið til að koma sér í leikæfingu.

Þar spilaði hann tíu leiki og skoraði sjö mörk.

Hann er löglegur með ÍBV þegar liðið sækir Þór heim í Pepsi-deildinni annað kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.