Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mán 13. júlí 2020 17:09
Ester Ósk Árnadóttir
Byrjunarlið KA og Fjölnis: Jajalo í marki KA-manna
Kristijan Jajalo.
Kristijan Jajalo.
Mynd: Hulda Margrét
Í kvöld klukkan 18:00 hefst leikur KA og Fjölnis í sjöttu umferð Pepsi-Max deildar karla. Leikurinn fer fram á Greifavellinum á Akureyri.

Báðum liðum hefur gengið illa að safna stigum í upphafi móts. Fjölnir er með eitt stig á botni deildarinnar og KA með tvö stig sæti hærra. Bæði lið eru því í fallsæti og þurfa nauðsynlega á sigri að halda í dag. Fjölnir tapaði fyrir Gróttu í síðustu umferð 0-3 og KA tapaði á móti Fylkir 4-1.

KA gerir þrjár breytingar frá síðasta leik. Kristijan Jajalo kemur í markið fyrir Aron Dag. Ásgeir Sigurgeirsson og Andri Fannar Stefánsson eru sömuleiðis í byrjunarliði KA. Bjarni Aðalsteinsson fær sér sæti á bekknum og Steinþór Freyr Þorsteinsson er ekki í hóp.

Fjölnir gerir eina breytingu en Orri Þórhallsson kemur inn í liðið í stað Kristófers Óskars Óskarssonar sem er á bekknum.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.

Byrjunarlið KA
12. Kristijan Jajalo
7. Almarr Ormasson (f)
3. Mikkel Qvist
4. Rodrigo Gomes Mateo
5. Ívar Örn Árnason
6. Hallgrímur Mar Steingrímsson
11. Ásgeir Sigurgeirsson
14. Andri Fannar Stefánsson
16. Brynjar Ingi Bjarnason
22. Hrannar Björn Steingrímsson
33. Guðmundur Steinn Hafsteinsson

Byrjunarlið Fjölnis
12. Atli Gunnar Guðmundsson
28. Hans Viktor Guðmundsson (f)
4. Sigurpáll Melberg Pálsson
6. Grétar Snær Gunnarsson
6. Ingibergur Kort Sigurðsson
8. Arnór Breki Ásþórsson
16. Orri Þórhallsson
20. Peter Zachan
21. Christian Justesen Sivebæk
23. Örvar Eggertsson
29. Guðmundur Karl Guðmundsson

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.

Leikir kvöldsins:
18:00 KA-Fjölnir (Greifavöllurinn)
19:15 FH-Fylkir (Kaplakrikavöllur)
19:15 KR-Breiðablik (Meistaravellir)
19:15 Valur-Stjarnan (Origo völlurinn)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner