Atli: Alltaf góð tilfinning að hitta hann vel
Auglýsing

Atli í leiknum gegn Fram

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Atli í leiknum gegn Fram

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
„Úr því sem komið var tekur maður stigin en við hefðum getað klárað þetta og áttum það skilið. Við þurfum bara að taka þessu og halda áfram. Segir Atli Arnarson leikmaður HK eftir 1-1 jafntefli gegn KR þar sem hann var á skotskónum.
HK fengu færi til að skora í leiknum í dag en nýttu ekki í flestum tilfellum.
„Það svíður aðeins núna. Við höfum verið að vinna í því í pásunni að stoppa í þessum götum því höfum verið að skora alveg fullt. Það gekk þokkalega en við þurfum líka að nýta færin."
Þetta var fyrsti leikur HK eftir langa pásu sökum U19 ára EM karla.
„Pásan var fulllöng. Hásumar í júlí og að vera í 14-15 daga pásu. Maður hefði frekar viljað vera að spila. Maður tekur þessu bara eins og það er."
Atli skoraði jöfnunarmarkið með frábæru skoti utan af velli.
„Alltaf góð tilfinning þegar maður hittir hann vel og það var gott að ná þessu inn í dag."