Fotbolti.net
13.07.23 - 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Síminn

Ekki á förum frá Bayern - „Alltaf gaman þegar maður er orðaður við önnur félög"

Auglýsing
Þetta er Glódís á bakvið hárið.

Þetta er Glódís á bakvið hárið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjallað var um það í lok maí að landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir væri skotmark Arsenal. Glódís er leikmaður Bayern Munchen hefur verið orðuð við Arsenal undanfarin ár eftir að Jonas Eidevall, þjálfari Glódísar hjá Rosengård, tók við sem þjálfari Arsenal. Glódís var hjá Rosengård áður en hún fór til Bayern sumarið 2021.

Morgunblaðið fjallaði um að Arsenal ætlaði sér að reyna kaupa Glódísi í sumar.
Glódís var til viðtals í dag fyrir landsleikinn gegn Finnlandi á morgun. Viðtalið er í lengri kantinum og má sjá það í heild sinni í spilaranum efst.

Glódís var spurð út í komandi tímabil hvort að markmiðið hjá Bayern væri að taka þrennuna; þýsku deildina, bikarinn og Meistaradeildina.

„Það er náttúrulega draumurinn, en það er rosalega erfitt, mikið af góðum liðum í Evrópu og mikil samkeppni í Þýskalandi líka. En það er klárlega það sem mann langar að gera."

En eru einhverjar líkur á að hún fari frá Bayern?

„Nei, það eru engar líkur á því," sagði Glódís og brosti. „Það er alltaf gaman þegar maður er orðaður við önnur félög eða einhver heldur að einhver hafi áhuga. Ég er rosalega sátt hjá Bayern og er í flottu hlutverki þar."

Hún kom aðeins inn á Arsenal fyrr í viðtalinu þar sem spurt var út í Meistaradeildina. Arsenal sló Bayern út með því að vinna seinni leikinn 2-0 eftir 1-0 sigur Bayern í fyrri leiknum. Voru það vonbrigði?

„Já, mér fannst það klárlega. Við fórum inn í seinni leikinn á móti Arsenal í góðri stöðu og mér fannst að við hefðum átt að klára þann leik betur. Við spiluðum mjög slakan leik fannst mér, frá A-Ö. Það var svolítið svekkjandi en að sama skapi lentum við í rosalega miklum meiðslum og við vorum með rosalega þreytt lið. Allir leikmennirnir inn á voru búnir að spila allar mínúturnar síðan um jólin. Andlega og líkamlega var komin mikil þreyta. Mér finnst það samt engin afsökun, við vorum í góðri stöðu og hefðum átt að klára þetta," sagði Glódís.
Á landsliðsæfingu í dag.

Á landsliðsæfingu í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.