Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 13. ágúst 2020 15:00
Magnús Már Einarsson
Ajeti til Celtic (Staðfest) - Gæti spilað gegn KR
Mynd: Getty Images
Celtic hefur keypt framherjann Albian Ajeti frá West Ham á fimm milljónir punda.

Hinn 23 ára gamli Ajeti er svissneskur landsliðsmaður en hann kom til West Ham frá Basel í fyrra.

Ajeti náði ekki að festa sig í sessi hjá Hömrunum en hann kom níu sinnum inn á sem varamaður á síðasta tímabili.

KR mætir Celtic í Meistaradeildinni í næstu viku og Ajeti gæti spilað sinn fyrsta leik þar.


Athugasemdir
banner
banner