Fotbolti.net
13.08.20 - 11:00
Elvar Geir Magnússon

Kristófer Páll aftur í Keflavík (Staðfest)

Kristófer Páll aftur í Keflavík (Staðfest)
Canon

Mynd: Raggi Óla

Lengjudeildin
Keflavík hefur kallað kantmanninn Kristófer Pál Viðarsson til baka úr láni frá Leikni Fáskrúðsfirði.

Kristófer Páll sleit krossband í fyrra og missti af öllu tímabilinu.

Hann sneri aftur til æfinga í vor og fór í júní til uppeldisfélagsins Leiknis á láni.
Kristófer spilaði fimm leiki með Leikni í Lengjudeildinni í júlí en hann er nú kominn aftur til Keflavíkur.

Keflavík seldi kantmanninn Adam Ægi Pálsson til Víkings R. í vikunni og Kristófer mun hjálpa til við að fylla skarð hans.

Keflavík er í 3. sæti í Lengjudeildinni en næsti leikur liðsins er gegn Magna á útivelli á laugardaginn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.