Fotbolti.net
13.08.26 - 21:06
Kristján Hrafn Kristjánsson

Jóhann Birnir: Hann sparkaði í hausinn á okkar manni

Auglýsing
,,Menn munu sjá úr hverju þeir eru gerðir

,,Menn munu sjá úr hverju þeir eru gerðir

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

ÍR fór vestur á Ísafjörð fyrr í kvöld og mætti Vestra í 18. umferð Lengjudeildarinnar. Leikurinn endaði með 1-0 sigri Vestra.

Fótbolti.net var á staðnum og ræddi við Jóhann Birni þjálfara ÍR eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Vestri 1 - 0 ÍR

Við erum svekktir með að tapa. Leikurinn var í algjörum járnum og þeir skora síðan mark sem okkur fannst vera brot". Sagði Jóhann Birnir eftir leik.

Hvað nákvæmlega var það sem þið vilduð fá brot á?

Hann bara sparkaði í hausinn á okkar manni, mér finnst það yfirleitt vera brot. Ég á svo sem eftir að sjá þetta aftur en strákarnir töluðu um þetta. Eins og þetta leit út fyrir mér þá átti þetta að vera brot, hættuspark, en svona er þetta og það er leiðinlegt að tapa leiknum á þessu".


Hvað fannst þér vanta upp á?

„Þetta var vel upp settur leikur og strákarnir voru ótrúlega flottir allan leikinn. Við vorum í góðu "shape-i"  allan leikinn, við eigum skot í stöng og fáum dauðafæri eins og þeir. Sérstaklega eftir að þeir skora þá náðu þeir aðeins að opna okkur, en fram að því man ég ekki eftir því að Villi hafi þurft að verja skot".


Það eru fjórir leikir eftir í hefðbundni keppni í Lengjudeildinni og ÍR eru tveimur stigum frá fallsæti, hvernig lýst þér á framhaldið?

„Svona er fótboltinn, það er ekkert gaman að vera í þessari stöðu en þetta eru leikir sem að menn munu sjá úr hverju þeir eru gerðir. Það er gaman að taka þátt í leikjum sem skipta engu máli".

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.