Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 13. september 2020 13:13
Kristófer Jónsson
Byrjunarlið KR og Stjörnunnar: Bikar-Ægir byrjar fyrir KR
Ægir Jarl skoraði tvö gegn Blikum
Ægir Jarl skoraði tvö gegn Blikum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elís Rafn kemur inní lið Stjörnunnar
Elís Rafn kemur inní lið Stjörnunnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Núna klukkan 14:00 hefst stórleikur KR og Stjörnunnar í Pepsi Max-deild karla á Meistaravöllum.

Þetta er gríðarlega mikilvægur leikur í toppbaráttunni en aðeins eitt stig munar á milli liðanna. KR situr í 5.sæti með 20 stig á meðan að Stjörnumenn eru í 4.sæti með 21 stig. Byrjunarliðin eru nú klár.

KR-ingar gera eina breytingu á liði sínu frá leiknum þeirra gegn Breiðablik fyrir þremur dögum. Fyrirliðinn Óskar Örn Hauksson sest á bekkinn og Stefán Árni Geirsson kemur inn í hans stað.

Stjörnumenn gera þrjár breytingar á liði sínu frá 3-0 tapi þeirra gegn FH í Mjólkurbikarnum. Þeir Jóhann Laxdal, Guðjón Pétur Lýðsson og Guðjón Baldvinsson fá sér sæti á bekknum og inn koma þeir Halldór Orri Björnsson, Elís Rafn Björnsson og Sölvi Snær Guðbjargarson. Liðin má sjá hér að neðan.

Lestu beina textalýsingu

Byrjunarlið KR:
1. Beitir Ólafsson (m)
5. Arnór Sveinn Aðalsteinsson
8. Finnur Orri Margeirsson
10. Pálmi Rafn Pálmason (f)
11. Kennie Chopart
14. Ægir Jarl Jónasson
19. Kristinn Jónsson
21. Kristján Flóki Finnbogason
23. Atli Sigurjónsson
25. Finnur Tómas Pálmason
29. Stefán Árni Geirsson

Byrjunarlið Stjörnunnar:
1. Haraldur Björnsson (m)
2. Brynjar Gauti Guðjónsson
8. Halldór Orri Björnsson
9. Daníel Laxdal
10. Hilmar Árni Halldórsson
11. Þorsteinn Már Ragnarsson
12. Heiðar Ægisson
18. Sölvi Snær Guðbjargarson
21. Elís Rafn Björnsson
22. Emil Atlason
29. Alex Þór Hauksson (f)

Lestu beina textalýsingu
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner