Steve Mounié og Bersant Celina hafa báðir verið seldir úr Championship deildinni yfir til Frakklands.
Mounié gengur í raðir Brest eftir þrjú ár hjá Huddersfield, þar sem hann skoraði 19 mörk í 95 leikjum.
Mounié verður 26 ára í lok september og er lykilmaður í landsliði Benín. Brest greiðir fimm milljónir evra fyrir sóknarmanninn, sem kostaði Huddersfield þrettán milljónir á sínum tíma.
Þá er miðjumaðurinn Bersant Celina genginn til liðs við Rúnar Alex Rúnarsson og félaga í Dijon.
Celina er 24 ára og borgar Dijon þrjár milljónir evra fyrir hann. Celina hefur verið hjá Swansea í tvö ár en þar áður dvaldi hann hjá Manchester City í sex ár.
Celina var mikilvægur hlekkur í liði Swansea og sýndi Graham Potter, stjóri Brighton, honum áhuga á dögunum.
Celina lék 77 leiki á tveimur árum hjá Swansea og er hann lykilmaður í landsliði Kósovó.
Athugasemdir