Jose Mourinho, stjóri Tottenham, var svekktur eftir 1-0 tap gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Þetta er í fyrsta sinn sem Jose Mourinho stýrir tapliði í fyrsta leik tímabilsins í deild þeirra bestu á Englandi.
Þetta er í fyrsta sinn sem Jose Mourinho stýrir tapliði í fyrsta leik tímabilsins í deild þeirra bestu á Englandi.
„Þetta var góður leikur fyrir markið. Við fengum tvær ótrúlegar stöður og Jordan Pickford varði tvisvar vel. Við skoruðum ekki, en leikurinn var opinn," sagði Mourinho.
„Gegn góðu liði eins og Everton, ef þú leyfir þeim að spila frá aftasta manni þá líður þeim mjög þægilega með marga leikmenn með góða tækni. Ef þú pressar ekki þá gefurðu þeim skotvopn."
„Við vorum latir í pressunni. Það er vegna þess að leikmenn eru ekki í góðu standi eftir slæmt undirbúningstímabil. Sumir leikmenn fengu ekki einu sinni undirbúningstímabil. Sumir leikmenn voru ekki með hausinn rétt stilltan. Ég vil ekki tala um það - ég er ekki alveg viss."
„Það var of auðvelt fyrir þá að spila frá aftasta manni."
Mourinho var ekki ánægður með markið sem kom eftir aukaspyrnu. „Þetta mark á ekki að vera mögulegt þegar þú ert með sex dómara og VAR. Að aukaspyrnan skyldi vera tekin fimm, sex metrum frá þeim stað sem hún átti að vera tekin á, það breytti miklu."
Athugasemdir