Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 13. september 2020 22:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Neymar sér bara eftir því að hafa ekki slegið Gonzalez í andlitið
Neymar gengur af velli í kvöld.
Neymar gengur af velli í kvöld.
Mynd: Getty Images
„Eina eftirsjáin er að ég barði hann ekki í andlitið," segir Brasilíumaðurinn Neymar á Twitter.

Neymar fékk að líta rauða spjaldið fyrir að slá Argentínumanninn
Álvaro González í hnakkann í erkifjendaslag gegn Marseille í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Það sauð upp úr í lokin og fóru fimm rauð spjöld á loft, þar á meðal á Neymar. Hérna má sjá myndband af atburðarrásinni.

Neymar sakar Gonzalez um kynþáttafordóma og reyndi hann að segja dómurunum frá því áður en hann gekk af velli. Dómararnir hlustuðu ekki á hann.

Samkvæmt lýsendum Téléfoot Chaine sagði Gonzalez við Neymar: „Þegiðu, skítugi apinn þinn."


Athugasemdir
banner
banner