Spænska félagið Barcelona hefur mikinn áhuga á því að fá argentínska framherjann Lautaro Martinez frá Inter. Þetta kemur fram í spænskum miðlum.
Martinez samdi við Inter síðasta sumar eftir að hafa heillað í Argentínu með Racing Club.
Hann hefur skorað 9 mörk í 14 landsleikjum með argentínska landsliðinu og hefur þá byrjað ágætlega en hann er með 3 mörk og 1 stoðsendingu í 9 leikjum.
Martinez er með 111 milljón evra riftunarákvæði í samningnum hans hjá Inter en Barcelona er tilbúið að greiða þá upphæð til að fá hann til félagisns.
Upphæðin er talin afar lág fyrir mann í þessum gæðaflokk en Inter er að vinna að því að hefja viðræður við Martinez um framlengingu á samningnum. Ljóst að samkeppnin er mikil um þennan unga framherja.
Athugasemdir