Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 13. október 2020 23:30
Aksentije Milisic
Aguero: Ég og Messi erum eins og gömul hjón
Mynd: Getty Images
Sergio Aguero grínaðist með það að hann og Lionel Messi séu eins og gömul hjón þegar þeir eru saman í herbergi í landsliðsverkefnum.

Aguero hefur spilað fyrir landslið Argentínu frá árinu 2006 þar sem hann hefur gert 41 mark í 97 leikjum. Hann er þriðji markahæsti leikmaðurinn í sögu landsliðsins, á eftir Gabriel Batistuta og Lionel Messi.

Messi spilaði sinn fyrsta leik fyrir landsliðið árið 2005 og hafa þeir tveir félagarnir orðnir nánir eftir öll þessi ár.

„Hann er alltaf að kvarta, við erum eins og gömul hjón," sagði Aguero.

„Ég sofna með sjónvarpið í gangi og morguninn eftir er hann alltaf að tuða í mér. Hann fer alltaf beint í sturtu þegar við komum inn á herbergi á meðan ég tala í símann. Þá minnir hann mig á það að við verðum að fara niður í mat og að við höfum ekki tíma."

Argentína vann Ekvador í undankeppni HM á dögunum þar sem Messi gerði eina mark leiksins úr vítaspyrnu.
Athugasemdir
banner