„Ég myndi ekki vilja spila fyrir þennan mann"

James Ward-Prowse.

Mynd: Getty Images

James Ward-Prowse.

Mynd: Getty Images
Michail Antonio, sóknarmaður West Ham, er ekki par sáttur við landsliðsþjálfarann Gareth Southgate um þessar mundir.
Enski landsliðshópurinn var tilkynntur í síðustu viku en áfram er ekki pláss fyrir James Ward-Prowse sem hefur farið virkilega vel af stað með West Ham á tímabilinu.
Ward-Prowse er 28 ára miðjumaður sem hefur lagt upp sex mörk og skorað tvö í níu leikjum.
Antonio talaði landsliðsvalið í hlaðvarpi sínu í dag og skaut þar á Southgate. Hann skilur ekki að leikmenn eins og Harry Maguire og Kalvin Phillips séu áfram valdir þegar þeir eru ekki að spila mikið fyrir félagslið sín.
„Hann hlýtur að vera að grínast," sagði Antonio. „Hvernig er James Ward-Prowse ekki valinn? Þetta er bara vandræðalegt fyrir þjálfarann. Þegar þú ert að spila upp á þitt besta, þá áttu að fá verðlaun fyrir það. Hann hefur verið ótrúlegur."
Antonio fékk sjálfur ekki tækifæri með enska landsliðinu en hann ákvað fyrir tveimur árum að spila fyrir landslið Jamaíku. Hann talaði um það að ef hann væri í sporum Ward-Prowse þá myndi hann neita að spila fyrir enska landsliðið þangað til Southgate yrði skipt út, hann væri það pirraður.
„Það er enginn stærri heiður en að spila fyrir þjóð sína en ég myndi ekki vilja spila fyrir þennan mann."

Antonio fagnar marki með West Ham.

Mynd: EPA

Harry Maguire og Gareth Southgate.

Mynd: EPA