Félög í efstu tveimur deildunum á eftir Harley Willard

Harley Willard.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Harley Willard.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Harley Willard er að verða samningslaus eftir að hafa átt flott tímabil með KA í Bestu deildinni. Hann sýndi flotta takta seinni hluta tímabilsins og endaði á því að skora fimm mörk í 24 deildarleikjum. Hann lagði þá upp þrjú ofan á það.
Willard er 25 ára gamall sóknarmaður frá Skotlandi sem hefur leikið á Íslandi frá árinu 2019 og vakið verðskuldaða athygli fyrir framgöngu sína. Hann spilar oftast á hægri kantinum en getur einnig leyst fleiri stöður.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafa nokkur félög í tveimur efstu deildum Íslands sett sig í samband við Willard á síðustu vikum. Einnig hafa félög erlendis skoðað að fá hann.
Kristján Óli Sigurðsson sagði frá því í hlaðvarpinu Þungavigtinni í gær að hugur Willard væri að leita á höfuðborgarsvæðið. Hann nefndi Fram, KR og fleiri félög væru að skoða hann.
Willard var hluti af akademíu Arsenal á sínum tíma og lék svo síðar meir með yngriliðum Southampton. Hann kom loks til Íslands árið 2019 og lék með Víking Ólafsvík í þrjú sumur, 2019-2021 og var meðal annars valinn í lið ársins í Lengjudeildinni. Með Víkingum lék hann 68 leiki í deild og bikar og gerði í þeim alls 36 mörk. Hann hefur einnig leikið með Þór á Akureyri hér á landi en hann skoraði 15 mörk í deild og bikar með Þórsurum í fyrra.
Það verður áhugavert að sjá hvað gerist næst, hvort að hann verði áfram í KA eða hvort hann reyni fyrir sér annars staðar.