Gríðarlega svekkjandi jafntefli í endurkomu Gylfa

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslenska karlalandsliðið gerði 1-1 jafntefli við Lúxemborg í undankeppni Evrópumótsins á Laugardalsvelli í kvöld.
Ísland var með algera yfirburði í fyrri hálfleiknum og skapaði sér mörg góð færi til að skora.
Orri Steinn Óskarsson var að byrja sinn annan landsleik og var að koma sér í góða sénsa. Hann átti skalla rétt framhjá markinu á 12. mínútu en rúmum tíu mínútum síðar kom fyrsta landsliðsmark hans.
Arnór Sigurðsson fékk boltann vinstra megin í teignum, lagði hann þvert fyrir markið á Orra sem stýrði boltanum örugglega í netið. Stuttu fyrir markið átti Arnór skot í þverslá.
Ísland gat bætt við öðru marki er hann lyfti boltanum yfir markvörð gestanna, en boltinn hárfínt framhjá markinu.
Útlitið var ansi gott í hálfleik en vantaði bara fleiri mörk og var refsað fyrir færanýtinguna.
Strax í upphafi síðari hálfleiks jafnaði Gerson Rodrigues með glæsilegu skoti fyrir utan teig. Hann fékk boltann fyrir utan, lyfti honum upp áður en hann þrumaði knettinum í vinstra hornið framhjá Rúnari Alex Rúnarssyni.
Ísland var heppið að lenda ekki undir á 69. mínútu er Daniel Sinani átti stórglæsilegt skot sem hafnaði í samskeytunum og út.
Gylfi Þór Sigurðsson sneri aftur á völlinn við mikinn fögnuð úr stúkunni þegar rúmar tuttugu mínútur voru eftir en hann var að spila sinn fyrsta landsleik síðan 2020.
Hann átti fínustu endurkomu. Gylfi tók hornspyrnu stuttu eftir að hann kom inná og kom boltanum inn í teiginn á Jón Dag Þorsteinsson sem stangaði boltann í átt að marki, en gestirnir björguðu á línu.
Það var kliður í Laugardalnum er Ísland fékk aukaspyrnu rétt fyrir utan teiginn á 83. mínútu. Gylfi tók spyrnuna, en boltinn í vegginn og aftur fyrir endamörk.
Jón Dagur komst næst því að tryggja sigur íslenska liðsins er Mikael Neville Anderson kom boltanum á fjærstöngina og á Jón Dag, sem var í þröngu færi, en skotið í stöngina.
Seint í uppbótartíma fékk Ísland hornspyrnu og ákvað Rúnar Alex að fara inn í teiginn til að reyna að kreista fram sigurmark, en það kom næstum því í bakið á liðinu. Markvörður Lúxemborg handsamaði boltann, þrumaði honum fram á Rodrigues sem var einn gegn opnu marki, en skaut boltanum í hliðarnetið. Ótrúlegt klúður.
Þetta var síðasta færið í leiknum og lokatölur 1-1 á Laugardalsvelli. Svekkjandi jafntefli niðurstaðan. Ísland er áfram í 5. sæti með 7 stig, á meðan Lúxemborg er með 11 stig í 3. sæti riðilsins.