ÍA nýtti sér riftunarákvæði í samningi Hákons Inga

Í leik með Kórdrengjum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í leik með Kórdrengjum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA hefur nýtt sér riftunarákvæði í samningi sínum við Hákon Inga Einarsson og verður hann því ekki áfram leikmaður liðsins. Fjallað var um málið í Þungavigtinni í gær og Fótbolti.net hefur fengið tíðindin staðfest.
Hann skrifaði undir tveggja ára samning fyrir síðasta tímabil þegar hann kom frá Kórdrengjum.
Hann skrifaði undir tveggja ára samning fyrir síðasta tímabil þegar hann kom frá Kórdrengjum.
Bakvörðurinn er 28 ára gamall, byrjaði þrjá leiki í Lengjudeildinni í sumar og kom alls við sögu í tíu leikjum þegar ÍA vann deildina.
Hákon er Skagamaður sem hefur leikið með ÍA, Kára, Þór, Magna, Vestra og Kórdrengjum á sínum meistaraflokksferli.
Hákon er Skagamaður sem hefur leikið með ÍA, Kára, Þór, Magna, Vestra og Kórdrengjum á sínum meistaraflokksferli.





