Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mið 13. nóvember 2019 21:19
Magnús Már Einarsson
Dagný Brynjars í Selfoss (Staðfest)
Mynd: Selfoss - Guðmundur Karl
Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir hefur samið við knattspyrnudeild Selfoss til tveggja ára. Dagný kemur til Selfoss frá Portland Thorns í bandarísku atvinnumannadeildinni.

Hún er margreynd landsliðskona og atvinnumaður en hún hefur spilað 178 deildarleiki hér heima og erlendis og skorað í þeim 49 mörk. Dagný hefur leikið 85 A-landsleiki og skorað í þeim 25 mörk.

Dagný býr á Selfossi og er ekki ókunnug félaginu því hún hefur spilað 37 leiki fyrir Selfoss í öllum keppnum. Hún spilaði síðast með Selfossi í úrvalsdeildinni 2015.

„Það er ótrúlega mikilvægt fyrir okkur að hafa náð að semja við Dagnýju. Við stefnum á að bæta árangur liðsins enn frekar og það er heiður fyrir félagið og þýðingarmikið fyrir samfélagið að fá atvinnumann af þessari stærðargráðu til þess að taka þátt í þessu verkefni. Við vitum öll hvað Dagný getur og hún mun klárlega hjálpa okkur að komast á næsta stig. Dagný þekkir Selfoss og er frábær félagsmaður og á eftir að gera mikið fyrir okkur bæði innan og utan vallar,“ segir Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari Selfoss.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner