Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 13. nóvember 2020 15:41
Elvar Geir Magnússon
Laugi nýr þjálfari Þróttar (Staðfest)
Guðlaugur Baldursson.
Guðlaugur Baldursson.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Guðlaugur og Kristján Kristjánsson, formaður Þróttar.
Guðlaugur og Kristján Kristjánsson, formaður Þróttar.
Mynd: Þróttur
Guðlaugur Baldursson hefur verið ráðinn sem þjálfari Þróttar í Lengjudeild karla. Hann var í þjálfarateymi FH á liðnu tímabili.

Þróttur hefur síðustu tvö tímabil haldið sér með naumindum í Lengjudeildinni.

„Ég átta mig á að þetta er krefjandi verkefni sem ég er að takast á við en um leið mjög áhugavert. Þróttur er stórt knattspyrnufélag sem á mikla möguleika og það verður spennandi að leiða félagið áfram á næstu árum, með það fyrir augum að byggja upp sterkt lið og koma því í efstu deild," segir Guðlaugur.

Tilkynning Þróttar:
Guðlaugur Baldursson hefur verið ráðinn sem þjálfari meistaraflokks karla hjá Þrótti og hefur gert fjögurra ára samning við félagið. Guðlaugur er afar reynslumikill þjálfari, hann hóf þjálfaraferil sinn í meistaraflokki í Vestmannaeyjum er hann tók við efstu deildar liði ÍBV að loknu keppnistímabilinu 2004. Hann hefur á ferli sínum þjálfað, ÍBV, lið ÍR og Keflavíkur bæði í efstu og næst efstu deild og nú síðast var hann í þjálfarateymi FH sem endaði í 2.sæti Pepsi Max deildarinnar á nýliðnu keppnistímabili. Hann var jafnframt aðstoðarþjálfari Heimis Guðjónssonar hjá FH á árunum 2012-2016 þar sem hann fagnaði þremur Íslandsmeistaratitlum á fimm árum.

Guðlaugur mun hefja störf 1. desember.

Kristján Kristjánsson formaður knd. Þróttar segir: “Það er mikill fengur í því fyrir Þrótt að fá Guðlaug sem þjálfara og fá aðgang að þeirri miklu þekkingu og reynslu sem hann býr yfir. Guðlaugur mun stýra uppbyggingu mfl liðs karla og stjórn knd. Þróttar er þess fullviss að þessi ráðning muni nýtast ungum leikmannahópi félagsins vel., enda fara hugmyndir og sýn stjórrnar deildarinnar og Guðlaugs vel saman”.

Stjórn knattspyrnudeildar Þróttar býður Guðlaug Baldursson hjartanlega velkominn í dalinn og hlakkar til farsæls samstarfs.

Guðlaugur Baldursson segir: “Ég átta mig á að þetta er krefjandi verkefni sem ég er að takast á við en um leið mjög áhugavert. Þróttur er stórt knattspyrnufélag sem á mikla möguleika og það verður spennandi að leiða félagið áfram á næstu árum, með það fyrir augum að byggja upp sterkt lið og koma því í efstu deild”.


Athugasemdir
banner
banner
banner