Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 13. nóvember 2020 18:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimild: Akureyri.net 
Orri Hjaltalín tekur við Þór (Staðfest)
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Orri Freyr Hjaltalín hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks Þórs. Þetta var staðfest á Akureyri.net nú fyrr í dag.

Hann skrifar undir þriggja ára samning og tekur við af Páli Viðari Gíslasyni sem þjálfaði liðið í sumar.

Orri, sem varð fertugur 1. júlí, lék með Þór upp yngri flokkana og lengi í meistaraflokki. Hann lék einnig með Grindavík og Magna ásamt því að hafa leikið með GG í 4. deildinni sumrin 2018 og 2019. Eftir það lagði hann skóna á hilluna.

Í tilkynningu Þórs þegar opinberað var að Palli yrði ekki áfram með liðið var greint frá því að félagið sóttist eftir þjálfara í fullt starf.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner