Fotbolti.net
13.12.21 - 12:36
Elvar Geir Magnússon

Real Madrid vill að sitt einvígi verði látið standa ef dregið er aftur

Real Madrid.

Real Madrid.

Canon

Mynd: EPA

Mistök voru gerð þegar dregið var í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar í morgun og miklar líkur taldar á að UEFA láti endurtaka dráttinn.

Spænska stórliðið Real Madrid fer fram á að ef drátturinn verði endurtekinn þá verði þeirra einvígi, gegn Benfica, látið standa. Það var fyrsta viðureignin upp úr pottunum og mistökin voru gerð eftir það.
Nokkur af félögunum hafa farið fram á að drátturinn verði endurtekinn en mistök voru gerð með kúlu Manchester United. Kúlan var ekki í pottinum þegar andstæðingar gegn Atletico Madrid voru dregnir.

UEFA hefur staðfest við Mirror að verið er að skoða dráttinn og rætt um hvort það þurfi að draga upp á nýtt. Talið er að það verði líklegasta niðurstaðan að dregið verði aftur.

Íþróttafréttamaðurinn Rodrigo Fáez segir að UEFA sé nálægt því að samþykkja að drátturinn verði endurtekinn.

Drátturinn, sem líklega verður dæmdur ólöglegur, var svona:

BENFICA - REAL MADRID
VILLARREAL - MANCHESTER CITY
ATLETICO MADRID - BAYERN MÜNCHEN
SALZBURG - LIVERPOOL
INTER - AJAX
SPORTING LISSABON - JUVENTUS
CHELSEA - LILLE
PSG - MANCHESTER UNITED
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.