fim 14. janúar 2021 09:30
Aksentije Milisic
Koeman bjartsýnn á að fá Depay og Wijnaldum í sumar
Mynd: Getty Images
Ronald Koeman, þjálfari Barcelona, er sagður vera bjartsýnn yfir því að fá samlanda sína, þá Memphis Depay og Georginio Wijnaldum, til Barcelona á frjálsri sölu næsta sumar.

Samningur Wijnaldum hjá Liverpool rennur út í sumar og hann hefur enn ekki skrifað undir framlengingu. Hann getur því byrjað að ræða við önnur lið.

Liverpool bauð honum nýjan samning í síðasta mánuði en hann var ekki tilbúinn til þess að skrifa undir hann. Klopp vill halda leikmanninum en óvíst er hvort það takist.

Depay er einnig að renna út af samningi en hann segist vera ánægður hjá Lyon. Hann hefur spilað 157 leiki fyrir franska liðið og skorað 65 mörk og lagt upp 48.

Þá er Koeman einnig að reyna fá Eric Garcia, varnarmann Manchester City, til liðsins.


Athugasemdir
banner
banner
banner