Fotbolti.net
14.01.23 - 21:33
Brynjar Ingi Erluson

Rekinn eftir níu leiki án sigurs (Staðfest)

Mark Hudson

Mark Hudson

Canon

Mynd: EPA

Mark Hudson var í dag rekinn frá Cardiff City í ensku B-deildinni en þetta gerist aðeins tveimur mánuðum eftir að hann var fastráðinn í starfið.
Hudson, sem lék um árabil með Cardiff, tók við þjálfarastarfi innan félagsins á síðasta ári en var gerður að bráðabirgðastjóra í september eftir að Steve Morison var rekinn.

Í nóvember var hann svo ráðinn stjóri félagsins eftir að hafa náð í góð úrslit en gengi liðsins hefur verið dapurt síðan.

Liðið hefur ekki unnið í síðustu níu leikjum sínum og fékk hann sparkið í dag eftir 1-1 jafnteflið gegn Wigan.

Dean Whitehead mun stýra liðinu tímabundið á meðan Cardiff leitar að eftirmanni Hudson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.