fös 14. febrúar 2020 13:50
Magnús Már Einarsson
KSÍ kynnir nýtt merki sitt
Nýtt merki KSÍ.
Nýtt merki KSÍ.
Mynd: KSÍ
Gamla merki KSÍ.
Gamla merki KSÍ.
Mynd: Merki
Knattspyrnusamband Íslands kynnti í dag til sögunnar nýtt merki sambandsins. Annað merki verður fyrir landslið Íslands en það verður kynnt síðar.

„Uppfært merki KSÍ (útg. 2020) dregur fram hreyfinguna og kraftinn sem býr í knattspyrnunni með þéttum formum og gegnumgangandi skálínum," segir á heimasíðu KSÍ.

„Merkið er í íslensku fánalitunum þar sem rauð komman er um leið kyndill íslenskrar knattspyrnu. Með skýrari fókus og stílhreinni útfærslu getur merkið nú aðlagað sig betur að fjölbreyttum snertiflötum KSÍ og staðið sterkar á velli í allri stafrænni notkun sem verður æ fyrirferðarmeiri."

Af vef KSÍ
Athugið að merki KSÍ og þar með talinn landsliðsbúninginn og leikmenn íklædda honum er óheimilt að nota opinberlega nema með samþykki KSÍ.

Aðildarfélögum KSÍ er heimilt að nota merki KSÍ og þar með talinn landsliðsbúninginn og leikmenn íklædda honum í knattspyrnulegum tilgangi. Öll óréttmæt eða óviðeigandi notkun varðar við lög og reglugerðir KSÍ.

Öðrum en samstarfsaðilum KSÍ er óheimilt að nota merki KSÍ og þar með talinn landsliðsbùninginn og leikmenn íklædda honum í markaðslegum tilgangi.

Verði aðrir aðilar en samstarfsaðilar KSÍ uppvísir að notkun vörumerkja sambandsins í markaðslegum tilgangi án heimildar áskilur KSÍ sér rétt til að senda viðkomandi aðila reikning fyrir notkun vörumerkjanna.

Merkið og landsliðsbúningurinn eru skráð vörumerki og njóta verndar samkvæmt viðeigandi lögum og reglugerðum.

Uppfært merki KSÍ (útg. 2020) dregur fram hreyfinguna og kraftinn sem býr í knattspyrnunni með þéttum formum og gegnumgangandi skálínum. Merkið er í íslensku fánalitunum þar sem rauð komman er um leið kyndill íslenskrar knattspyrnu. Með skýrari fókus og stílhreinni útfærslu getur merkið nú aðlagað sig betur að fjölbreyttum snertiflötum KSÍ og staðið sterkar á velli í allri stafrænni notkun sem verður æ fyrirferðarmeiri.

Í sérstökum tilfellum er KSÍ heimilt að nota eða samþykkja aðrar útgáfur af merkinu (svart/hvíta, negatífa, upphleypta eða annað), þar sem það við.
Athugasemdir
banner
banner