Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 14. febrúar 2021 18:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýskaland: Frankfurt og Wolfsburg í Meistaradeildarsætum
Andre Silva skoraði fyrir Frankfurt.
Andre Silva skoraði fyrir Frankfurt.
Mynd: Getty Images
Það fóru fram tveir leikir í þýsku úrvalsdeildinni í dag.

Eintracht Frankfurt hefur verið á mjög miklu skriði og er komið upp í þriðja sæti deildarinnar. Frankfurt hafði betur gegn Köln í dag. Portúgalski sóknarmaðurinn Andre Silva braut ísinn á 57. mínútu og Frakkinn Evan Ndicka bætti við öðru marki þegar rúmar tíu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.

Frankfurt er búið að vinna fjóra deildarleiki í röð og er í þriðja sæti með 39 stig, fimm stigum eftir RB Leipzig sem er í öðru sæti. Köln situr í 14. sæti.

Þá gerðu Wolfsburg og Borussia Mönchengladbach markalaust jafntefli. Wolfsburg hafði unnið fimm leiki í röð fyrir leikinn í dag en nú er sigurgangan á enda. Wolfsburg er í fjórða sæti með 39 stig, eins og Frankfurt. Gladbach er í sjöunda sæti með 32 stig.

Wolfsburg 0 - 0 Borussia M.

Eintracht Frankfurt 2 - 0 Koln
1-0 Andre Silva ('57 )
2-0 Obite Evan Ndicka ('79 )
Athugasemdir
banner
banner