Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 14. mars 2017 12:18
Magnús Már Einarsson
Arnór Borg Guðjohnsen til Swansea (Staðfest)
Arnór Guðjohnsern, Arnór Borg Guðjohnsen og Anna Borg.
Arnór Guðjohnsern, Arnór Borg Guðjohnsen og Anna Borg.
Mynd: Blikar.is
Swansea hefur keypt hinn 16 ára gamla Arnór Borg Guðjohnsen frá Breiðabliki. Þetta kemur fram á Blikar.is.

Arnór er sonur fyrrum landsliðsmannsins Arnórs Guðjohnsen og því yngri bróðir Eiðs Smára Guðjohnsen.

„Arnór er hluti af mjög sterkum 2000 árgangi hjá Blikum sem hefur verið mjög sigursæll í gegnum yngri flokkana," segir á Blikar.is.

„Arnór fór til Swansea til prufu fyrir skömmu og greinilegt að Walesbúunum leist svo vel á kauða að þeir vildu kaupa hann af Blikum. Það gekk eftir og mun Arnór fara til Wales í sumar."
Athugasemdir
banner
banner