Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 14. mars 2020 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ronaldinho skoraði fimm og lagði upp sex í úrslitaleiknum
Mynd: Getty Images
Ronaldinho er í fangelsi í Paragvæ um þessar mundir og tók þátt í fótboltamóti yfir helgina.

Hæfileikar Ronaldinho eru óumdeilanlegir og bar hann höfuð og herðar yfir aðra fanga á mótinu.

Hann skoraði fimm mörk og lagði hin sex upp í úrslitaleiknum sem lauk með 11-2 sigri.

Ronaldinho og félagar fá 16kg reykt svín í verðlaun og því hægt að búast við mikilli veislu í fangelsinu í kvöld.

Leikið var fimm gegn fimm með Futsal reglum. Spilað var á malbiki utandyra.

Ronaldinho neitaði upphaflega að taka þátt í mótinu en var sannfærður samföngum sínum er hann gekk framhjá sparkvellinum í gær.

Sjá einnig:
Ronaldinho sakaður um að vera með falskt vegabréf

„Ronaldinho veit ekki að hann framdi glæp, hann er flón"

Ronaldinho vann fyrsta leik 11-2 í fangelsismótinu
Athugasemdir
banner
banner
banner