Fotbolti.net
14.04.23 - 21:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Það og fótboltinn trompar alla þá peninga sem hann hefur misst af''

„Það og fótboltinn trompar alla þá peninga sem hann hefur misst af''
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Sveinn Geirsson formaður Leikmannasamtaka Íslands var í viðtali hjá Vísi.is og ræddi þar mál Gylfa Þórs Sigurðssonar sem var látinn laus eftir að hafa verið í haldi lögreglunnar í Manchester frá því í júlí 2021.

„Það sem kemur á óvart er að eftir svona langan tíma, þar sem að bornar eru á hann mjög alvarlegar sakir og hann settur í farbann frá Bretlandi, þá finnst manni hálfótrúlegt að þetta sé niðurstaðan. Á sama tíma gleður það mann auðvitað að það virðist ekki fótur fyrir neinu sem þarna átti að hafa verið í gangi,“ sagði Arnar Sveinn í samtali við Vísi.

„Það fer auðvitað fyrir brjóstið á manni að leikmaður á hátindi ferils síns, besti fótboltamaður í sögu Íslands að öllum líkindum, að hann fær þessi ár aldrei aftur."

Gylfi hefur orðið fyrir gríðarlegu fjárhagslegu tjóni en Arnar bendir réttilega á að það sé ekki það versta fyrir Gylfa sjálfann.

„Auðvitað er fullt af peningum í spilinu en þetta slær mann mest. Þarna var líf hans rifið í burtu frá honum, og þar með tækifærið til að gera það sem hann elskar mest sem er að spila fótbolta. Þegar þetta er niðurstaðan þá spyr maður sig hvort nauðsynlegt hafi verið að gera þetta með þessum hætti, en það er auðvitað ekki eitthvað sem hægt er að segja neitt til um án þess að vita allt um málið. En manni finnst þetta allt saman mjög sorglegt," sagði Arnar.

„Nú hefur hann ekki spilað fótbolta í tvö ár og spurning hvaða möguleikar eru fyrir hann til að koma til baka. En svo er hann líka með fjölskyldu og fólk í kringum sig sem þetta bitnar á. Það og fótboltinn trompar alltaf alla þá peninga sem hann hefur misst af."

Heimild: Vísir.is

„Það og fótboltinn trompar alla þá peninga sem hann hefur misst af''
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.