Ten Hag notar kúalíkingu til að lýsa hegðun Antony


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Erik ten Hag stjóri Manchester United kom breskum fjölmiðlamönnum í opna skjöldu þegar hann notaði ansi klúrt hollenskt orðatiltæki til að lýsa Antony leikmanni liðsins.
Hann tók Bruno Fernandes og Antony af velli í stöðunni 2-0 gegn Sevilla en spænska liðið náði að jafna metin í uppbótartíma. Hann var spurður út í skiptingarnar á blaðamannafundi.
„Antony slapp en ekki koma þér í þessar aðstæður, allt er með okkur, erum 2-0 yfir, spilum vel svo ekki fara í einvígi gegn andstæðingunum. Það er óþarfi, þú hitar andstæðingana upp og átt á hættu að vera rekinn af velli, ég vildi ekki taka áhættuna," sagði Ten Hag.
„Þaðan sem ég kem köllum við þetta að horfa í rassgatið á kú. Það segjum við á mínu svæði í Hollandi."




