Fotbolti.net
14.05.16 - 16:32
Arnar Helgi Magnússon

Stefán Ragnar: Menn voru bara sofandi í byrjun

Auglýsing
Stefán Ragnar: Menn voru bara sofandi í byrjun
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Keflvíkingar unnu sannfærandi sigur á Selfyssingum í 2.umferð Inkassodeildarinnar í Keflavík í dag. Selfyssingar áttu í rauninni aldrei séns eftir að Keflvíkingar komust í 2-0 eftir einungis 20 mínútur.

Stefán Ragnar Guðlaugsson fyrirliði Selfyssinga var að vonum súr með niðurstöðuna.
„Við ætluðum að koma sterkir inn og setja pressu á þá en það var eins og allir væru að bíða eftir því að einhver annar tæki af skarið. Það var enginn sem tók af skarið, menn voru bara sofandi í byrjun.\"

Vörn Selfyssinga var ekki sannfærandi í mörkunum og gat Stefán Ragnar tekið undir það.

„Í fyrsta markinu misreikna ég boltann, fæ hann yfir mig og þá voru þeir sloppnir í gær. Annað markið var ódýrt eftir hornspyrnu, seinni bolti sem við eigum að vera klárir í. Klárlega á að vera hægt að koma í veg fyrir þessi mörk.\"

„Í seinni hluta af fyrri hálfleik þá vorum við búnir að ná boltanum niður á jörðina og farnir að skapa álitlegar stöður en náðum ekki að klára þær. Við ætluðum að byggja á því, en svo koma þeir með þetta 3. mark sem drepur leikinn.\"

Selfyssingar drógust gegn KR í 32-liða úrslitum Borgunarbikarsins, Stefáni líst vel á þá viðureign.

„Já bara mjög vel. Það er einn leikur í deildinni fyrir hann þannig við erum dálítið að reyna að ýta þessum leik frá.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.