Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 14. maí 2019 15:47
Arnar Daði Arnarsson
Var Valur að reyna selja Emil Lyng áður en hann meiddist?
Emil Lyng.
Emil Lyng.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samkvæmt heimildum 433.is hafði Valur hug á því að selja Emil Lyng áður en hann meiddist.

Emil tognaði aftan í læri snemma leik í 2-1 tapi liðsins gegn ÍA á laugardaginn. Fyrir leikinn var Emil Lyng á sölulista hjá Val samkvæmt heimildum 433.is.

Fréttir birtust í morgun þess eðlis að Valur væri að reyna losa sig við sóknarmanninn, Gary Martin.

Miðað við þetta þá var Gary ekki sá eini sem Valur vill losa sig við. Sigurbjörn Hreiðarsson aðstoðarþjálfari Vals staðfesti að Emil Lyng væri frá næstu vikurnar.

Emil Lyng gekk í raðir Vals á sama tíma og Gary Martin skrifaði undir hjá félaginu fyrr á þessu ári. Báðir hafa þeir verið gagnýndir fyrir spilamennsku sína í sumar, líkt og fleiri leikmenn liðsins.

Athugasemdir
banner
banner